Berglind Halla útskrifaðist sem leikkona frá Listaháskóla Íslands vorið 2019. Síðan þá hafa verkefnin verið bundin við sjálfstæðu sviðslistasenuna og hefur Berglind verið partur af mörgum ólíkum listahópum og sýningum. Þar má helst nefna Undir eftir Adolf Smára Unnarsson, Þöglar byltingar eftir Magnús Thorlacius, Ég býð mig fram með Unni Elísabetu Gunnarsdóttur og We will Rock You í Háskólabíói.

Nýlega tók hún við hlutverki í Ávaxtakörfunni sem Rauða Eplið en um er að ræða uppfærslu frá 2022.

Berglind hefur verið rödd Örnu mjólkurvaranna síðan 2019 en er einnig rödd Local salat og Löður. Þá hefur talsett fjölda tímabundinna auglýsinga fyrir ýmis fyrirtæki. Hægt er að nálgast demo á audioland.is

Headshot by
Gunnlöð Jóna Rúnarsdóttir (since 2020)

Ferilskrá / CV

 
 

Myndir úr sviðsuppfærslum